F&F Riga Hockey Cup 2026
Fjáröflun fyrir Fáfni og Fenri – á leið á Riga Hockey Cup

1. Tilgangur

Drátturinn er haldinn til fjáröflunar fyrir Fáfni og Fenri vegna þátttöku þeirra á Riga Hockey Cup.

2. Þátttaka

Allir sem kaupa miða í drættinum teljast þátttakendur.

Hver miði hefur einstakt númer og fer í pottinn við skráða greiðslu.

Þátttakandi getur keypt eins marga miða og hann kýs.

3. Framkvæmd dráttar

Dregið verður með tölvudrætti (handahófskenndu valferli).

Öll gild og greidd miðanúmer fara í dráttarpott.

Dregið er úr pottinum þar til allir auglýstir vinningar hafa fengið vinningsnúmer.

Sami miði getur einungis unnið einu sinni, nema annað sé sérstaklega tekið fram og/eða færri miðar seldir en fjöldi vinninga.

4. Vinningar

Vinningar verða samkvæmt auglýstum lista hjá umsjónaraðila dráttarins.

5. Tilkynning vinningshafa

Niðurstöður dráttar verða birtar á opinberum miðlum fjáröflunarinnar.

Einnig verður haft við vinningshafa með þeim samskiptaupplýsingum sem gefnar voru upp við þátttöku.

6. Afhending vinninga

Nánari upplýsingar um afhendingu verða sendar vinningshöfum eftir drátt.

7. Persónuupplýsingar

Persónuupplýsingar eru aðeins notaðar til að halda utan um þátttöku, framkvæma drátt og hafa samband við vinningshafa.

Upplýsingum verður eytt eftir drátt

Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila.

8. Fyrirvari

Umsjónaraðili áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur og, ef nauðsyn krefur, fresta drætti vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Með þátttöku samþykkja þátttakendur þessar reglur.